Wednesday, January 2, 2013

Bless, 2012

Jú, jú. Nú er árið 2012 liðin tíð. Á þessu ári gerðist margt, þar má nefna að ég fór í skóla, hætti í skóla og fór síðan að vinna í skóla sem gangavörður. Ég og Mummi vorum saman í hljómsveit sem hætti, byrjuðum í nýjum hljómsveitum sem báðar tóku þátt í músíktilraunum. Hljómsveitin hans Mumma vann!

Fór á Hróaskeldu og viðbeinsbrotnaði þar (náði samt að sjá The Cure og Wiz Khalifa svo ég fell ekki of mörg tár). Beilaði eftir 2-3 daga af sársauka og þjáningu og kíkti til móður minnar í Sönderborg. Þar hitti ég hinn eina og sanna Jodle Keld! Hann skutlaði mér og jóðlaði að sjálfsögðu alla ferðina. Mikill heiður að fá að hitta þann mann og enn meiri heiður að fá svona einkatónleika í bílnum.

Á þessu ári gerðist þó margt fleira. Vann sem þjónn þar sem ég hellti Pepsi óvart yfir gamalt fólk, vann sem umsjónarmaður í Íþróttahúsi, vann á KFC og hóf störf hjá Hagstofu Íslands (þar sem ég er enn). Vann einnig kippu af Sinalco í facebook like-leik.

Ætli stærsti sigurinn hafi þó ekki verið þegar ég fékk mín fyrstu 100 likes á facebook! 113 voru þau og voru þau fyrir fallegt góðverk fyrir fallega gamla konu. Og yfir 1000 likes á bleikt.is! http://bleikt.pressan.is/lesa/hvad-er-kynlif-an-astar/

En hvað um það, vil nú ekki vera að breyta þessum 2012 annáli í eitthvað mont. Hitti Ben Stiller, lék í KFC auglýsingu, náði boardslide upp 4 á ingó og keypti mér bassa, samsung galaxy sII og dell fartölvu.
...Tölvan sprakk reyndar, en lifði af eftir miklar viðgerðir.

Það sem mér þykir vænst um á árinu er sennilega þegar að hátíðin mín, Blái Máninn, var haldin í þriðja skipti og mættu um 350 manns. Það var töfrum líkast og hljómsveitin mín lauk kvöldinu með bilað hljómborð og engan bassa, en okkur tókst að vera svona óheppnir á flestum tónleikum sumarsins. 2013 er árið mitt og þá verður þetta eitthvað öðruvísi!

Annars þá er það ekki mikið meira sem ég vil tjá mig um, varð tvítugur, fór á nicolas cage mynd í bíó, fór á jólagesti bó, fór í fyrsta skipti í baknudd og andlitsmeðferð, smakkaði wasabi og sá þetta myndband í fyrsta skipti -> https://www.youtube.com/watch?v=ZC6nvYDg8ss

MBK.
jla

No comments:

Post a Comment